Myrti fyrrum eiginkonu sína vegna stöðubreytingar á Facebook

Æði rann á breskan karlmann sem myrti fyrrverandi eiginkonu sína eftir að hún hafði breytt hjúskaparstöðu sinni í „einhleyp“ á samskiptasíðunni Facebook.

Maðurinn, sem er 41s árs, hefur verið fundinn sekur um að myrða fyrrum eiginkonu sína, sem var 26 ára, en hann stakk hana með hníf.

Hún var heima hjá foreldrum sínum í Staffordskíri þegar hann myrti hana í maí sl. Hann reyndi svo að taka eigið líf.

Fram kom við réttarhöldin að maðurinn hafi fengið æðiskast þegar eiginkonan fyrrverandi breytti hjúskaparstöðu sinni í einhleyp á Facebook samskiptasíðunni. Hann sendi henni í kjölfarið mörg skilaboð sem hún svaraði ekki. Því ákvað hann að heimsækja hana með fyrrgreindum afleiðingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert