Skattur á viðrekstur kúa?

Stór hluti af metani í andrúmsloftinu kemur frá kúm þegar …
Stór hluti af metani í andrúmsloftinu kemur frá kúm þegar þær ropa eða reka við. Atli Vigfússon

Nýlega lauk heildarendurskoðun á danska skattkerfinu, segir í vefriti Landssambands kúabænda. Ein af megin niðurstöðum nefndarinnar er að stefna beri að lækkun tekjuskatts, en tekjuskattur er óvíða hærri en í Danmörku. Til að bæta upp tekjutap ríkisins af þessum völdum eru það tillögur nefndarinnar að lögð verði ýmis konar gjöld á atvinnustarfsemi. Þegar kýr leysa vind senda þær metan út í andrúmsloftið og ein af tillögunum er að losun metansins verði skattlögð. 

Þannig verði 600 DKK metanskattur lagður á hverja kú og 5 DKK skattur á hvert slátursvín. Fyrir meðalkúabú  myndi þetta þýða skattheimtu upp á rúma 1,5 milljónir. En kúabændur benda á að verði skattheimtan að veruleika muni nautgriparæktin verða flæmd til annarra landa sem ekki gera slíkar kröfur. Skynsamlegra sé að nýta metanið til orkuframleiðslu.
 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert