Hinn ítalski Fritzl fyrir rétt

Michele Mongelli.
Michele Mongelli.

Réttarhöld hefjast senn á Ítalíu yfir Michele Mongelli sem kallaður hefur verið „Hin ítalski Fritzl“. Hann nauðgaði dóttir sinni og hélt henni sem kynlífsþræl í 25 ár. Sonur Mongelli, Giuseppe, er einnig ákærður fyrir að misnota systur sína og fjögur börn sín.

Dómari mun ákveða hvort mennirnir verði lausir gegn tryggingu eða hvort þeim verður haldið áfram í haldið meðan rannsókn málsins fer fram.

Feðgarnir eru 64 og 41 árs gamlir en fórnarlambið, sem gengur undir nafninu Laura í fjölmiðlum, er 34 ára. Skýrslur af framburði hennar hafa smátt og smátt lekið í ítalska fjölmiðla. Misnotkunin hófst þegar hún var aðeins 9 ára og hefur Laura lýst því hvernig henni var haldið í dimmu herbergi með engu rafmagni og hún látin gegna hlutverki eiginkonu fyrir föður sinn og elskhuga fyrir bróður sinn. Hún segir föður sinn hafa sagt sér að það væri viðtekin venja að feður sænguðu hjá dætrum sínum.

„Faðir minn nauðgaði ekki bara mér heldur einnig systur minni. Elsta barn hennar var getið af föður okkar,“ er haft eftir Lauru í einni skýrslunni. „Faðir minn byrjaði að misnota mig þegar ég var níu ára. Hann sagði: 'Ég ætla að kenna þér leik áður en ég snerti þig, sem þú getur notað þegar þú verður eldri.'“ Fyrst nauðgaði bróðir hennar henni og síðar faðirinn og segir Laura það sama hafa komið fyrir yngri systur sína.

Laura hefur þegar sagt frá því að faðir hennar neyddi hana í fóstureyðingu og á spítalanum sagði hún spítalastarfsfólkinu og lögreglunni að henni hefði verið nauðgað af Marokkóbúa. Þá segir hún alla í fjölskyldunni hafa vitað af því að frumburður litlu systur hennar var barn föður þeirra.

Mongelli hefur verið í varðhaldi í meira en einn mánuð en bæði hann og sonurinn neita öllum ásökunum. Lögmaður Mongellis segir skjólstæðing sinn getulausan. Hann eigi erfitt með að trúa að dóttir sín myndi skálda nokkuð slíkt.

Eiginkona Mongelli, og móðir Lauru, stendur þétt við bak eiginmannsins sem og allir aðrir fjölskyldumeðlimirnir. Hún segir ásakanirnar ekki sannar, Mongelli sé heiðarlegur og duglegur faðir sem vilji börnunum sínum aðeins fyrir bestu. Lögreglan heldur að Mongelli hafi „þjálfað“ son sinn Giuseppi upp í að vera kynferðisafbrotamaður og eftir að hafa eignast börn hafi Giuseppi tekið að misnota þau. Hann á fjórar dætur á aldrinum 6-20 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara patty og selma: oj
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert