Netanyahu styður stofnun Palestínuríkis

Benjamin Netanyahu í ísraelska þinginu í dag. stækka

Benjamin Netanyahu í ísraelska þinginu í dag. Reuters

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, lýsti því í fyrsta skipti yfir nú síðdegis að hann styddi stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis en tók fram, að slíkt ríki yrði að vera vopnlaust og viðurkenna Ísrael sem ríki  gyðinga.

„Ef við höfum tryggingu fyrir því að ríkið verði vopnlaust og ef Palestínumenn viðurkenna Ísrael sem ríki gyðinga þá gætum við fundið lausn, sem byggist á vopnlausu Palestínuríki við hlið Ísraels. Hvort ríki hefði sinn fána, sinn þjóðsöng," sagði hann í ræði í Knesset, ísraelska þinginu í Jerúsalem. „Á svæði Palestínumanna verður enginn her."

Fyrstu viðbrögð Palestínumanna við þessari yfirlýsingu voru ekki jákvæð. Forsetaskrifstofa Palestínumanna sagði, að Netanyahu hefði stórskaðað möguleika á koma friðarferlinu af stað að nýju.  Þá sögðu Hamassamtökin, sem ráða ríkjum á Gasasvæðinu, að ræða ísraelska forsætisráðherrans endurspeglaði hugmyndafræði kynþáttahatara og öfgamanna.  

Netanyahu sagði einnig, að ekki kæmi til greina að taka við palestínskum flóttamönnum í Ísrael þar sem slíkt bryti gegn meginreglum gyðingaríkis. Þá útilokaði hann, að landtaka gyðinga á Vesturbakkanum verði stöðvuð eins og Bandaríkjamenn hafa krafist. Hann útilokaði einnig, að Jerúsalem verði höfuðborg Palestínuríkis. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »
Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Í gær, 18:38 Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hafa borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
Í gær, 17:53 Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

Í gær, 16:03 Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

Í gær, 17:22 Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
Í gær, 15:44 Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

Í gær, 15:34 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
Í gær, 14:37 Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
Í gær, 15:08 Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
Í gær, 12:56 „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
Í gær, 12:45 Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ...
Í gær, 11:29 Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.  Meira »

Saadi Gaddafi boðar byltingu

Saadi Gaddafi á velmektarárum sínum með keppnistreyju sína.
Í gær, 09:49 Saadi Gaddafi, einn sona Múammars Gaddafi heitins, fyrrum forseta Líbíu, segir að ný bylting kraumi meðal Líbíumanna sem séu óánægðir með nýja stjórnarhætti í landinu. Hann heitir því að snúa aftur til síns heima, en hann flúði til Níger. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

Í gær, 12:42 Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð í frammi vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum. Meira »

Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi

Ungir drengir vopnaðir byssum og sprengjum sjást á al-Qaeda æfingu.
Í gær, 10:55 Íraskir al-Qaeda liðar eru sagðir bera ábyrgð á tveimur sprengjum sem nýlega sprungu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Að auki eru samtökin talin vera ábyrg fyrir sprengjunum tveimur sem sprungu í sýrlensku borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létu lífið. Meira »

Rómarborg snæviþakin myndskeið

Enn snjóar í Evrópu
Í gær, 09:34 Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2 flottir strákabúningar til sölu
Til sölu eru 2 búningar: Superman búningur st. medium 6-8 ára kr. 3.000 Löggub...
Olíumálverk
Nýtt málverk eftir Stefán Vilhjálmsson Frýstundamálara Olía á striga,60x90cm. ...
Skrifborð+rúm+hilla til sölu
Barna-/unglingarúm m. dýnu ásamt hillu og skrifborði til sölu. Hægt er að nýta r...
KLIPPING - dömu og herra - 3.000 kr.
VERÐDÆMI virka daga, stutt hár: Lagning 2.400, blástur 2.800, perm. 5.900, litun...
 
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
Efta administrative assistant
Önnur störf
The Financial Mechanism Office (FMO) ...