Yfir 16 þúsund myrtir í Bandaríkjunum í fyrra

Reuters

Þótt glæpum í Bandaríkjunum hafi fækkað um 1,9 prósent í fyrra miðað við árið þar á undan voru 16.272 myrtir þar í fyrra eða um 45 á hverjum degi. Alls var 89.000 konum nauðgað í Bandaríkjunum í fyrra.

Yfir 834.000 urðu fyrir alvarlegri líkamsárás í Bandaríkjunum í fyrra en 441.885 voru rændir.

Kynferðislegt ofbeldi gegn körlum flokkast undir alvarlegar líkamsárásir eða kynferðisglæpi en ekki nauðganir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert