Drap dóttur sína vegna vindlinga

Singapúrskur karlmaður á þrítugsaldri á yfir höfði sér dauðadóm eftir að hann barði til dauða 23 mánaða dóttur sína í reiðikasti. Maðurinn reiddist þegar hann sá að dóttirin hafði rifið upp vindlingapakka og lék sér að vindlingunum. Maðurinn neitaði sökum.

Árásin átti sér stað í janúar síðastliðnum. Eiginkona mannsins kom fyrir réttinn og sýndi á dúkku hvernig maðurinn sparkaði í dóttur sína og trampaði á henni í kjölfarið. Þau hringdu á sjúkrabifreið þegar þau sáu blóð renna úr nefi hennar.

Verði maðurinn sakfelldur er líklegt að hann verði hengdur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert