Fyrsta dauðsfallið af völdum svínaflensu í Austurríki

Austurríkismenn hafa pantað nóg bóluefni fyrir alla þjóðina, 8,3 milljónir …
Austurríkismenn hafa pantað nóg bóluefni fyrir alla þjóðina, 8,3 milljónir manna. Enn er unnið að bólusetningu. Pool

Ellefu ára ítölsk stúlka lést í dag af völdum svonefndri svínaflensu, þ.e. inflúensu A(H1N1). Stúlkan lést á sjúkrahúsi í austurrísku borginni Innsbruck. Dauðsfallið er það fyrsta sem skráð hefur verið í Austurríki af völdum svínaflensu. Tveir sjúklingar liggja þungt haldnir á gjörgæsludeild.

Sjúklingarnir eru annars vegar þunguð ung kona í Vín og karlmaður á fimmtugsaldri í Salzburg. Bæði berjast við lungnasjúkdóma sem tóku sig upp í kjölfar svínaflensusmits.

Um fimm hundruð tilvik flensunnar eru skráð í Austurríki síðan í apríl. Í síðustu viku var nokkrum skólum lokað tímabundið í Tyrol-héraði eftir að nemendur kvörtuðu undan inflúensulíkum einkennum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert