Foreldrar loka dönskum leikskólum

Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn.

Á annan tug leikskóla og dagheimila í Kaupmannahöfn voru lokaðir í morgun vegna aðgerða foreldra, sem vilja mótmæla sparnaðaraðgerðum og uppsögnum borgarayfirvalda. 

Að auki hafa samtök foreldra gripið til aðgerða í fleiri leikskólum án þess að stöðva starfsemi þeirra og eru mótmælafundir og aðrar aðgerðir fyrirhuguð. 

Foreldrarnir krefjast þess að fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir á þessu sviði leiði ekki til þess að leikskólakennurum verði sagt upp.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert