Segir samkynhneigð orsök barnaníðs
Barnaníð er ekki afleiðing skírlífis heldur samkynhneigðar. Þetta er haft eftir Tarcisio Bertone kardínála, sem er næstæðsti stjórnandi Páfagarðs, í opinberri heimsókn hans til Chile.
Ummæli hans hafa vakið hörð viðbrögð enda koma þau á sama tíma og nær daglega berast nýjar fréttir af kynferðislegu ofbeldi kaþólskra presta gagnvart börnum.
„Fjöldi sálfræðinga og lækna hafa sýnt fram á að það eru engin tengsl milli skírlífis og barnaníðs. Samtímis hafa margir aðrir sýnt að það eru tengsl á milli samkynhneigðar og barnaníðs, eins og nýleg skrif bera með sér,“ sagði Tarcisio Bertone, án þess að vísa nánar til umræddra heimilda sem hann beitti fyrir sér.
Bertone er nokkurs konar staðgengill páfa og utanríkisráðherra Páfagarðs. Samtímis því sem Bertone heimsækir Chile heyrast háværar gagnrýnisraddir þess efnis að Páfagarður hafi ekki gert nægilega mikið til þess að refsa þeim kaþólsku prestum sem uppvísir hafa orðið að því að beita börn kynferðislegu ofbeldi, en í flestum tilvikum eru fórnarlömbin strákar.
Að mati sumra ber að túlka ummæli Bertones sem tilraun til þess að koma í veg fyrir frekari gagnrýni á kaþólsku kirkjuna og páfann, sem er sjálfur harðlega gagnrýndur fyrir að hafa tekið mjög léttvægt á ásökunum um barnaníð kaþólskra presta og samtímis reynt að halda hlífiskildi yfir umrædda presta.
Bloggað um fréttina
-
Arngrímur Stefánsson Hvers vegna bregður fólki svona? -
Valgarður Guðjónsson Fífl í páfagarði? -
Páll Jónsson Skemmtilegt -
Toshiki Toma Segir samkynhneigð orsök barnaníðs...??
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Erlent Ummæli kardínála vekja reiði
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Erlent Gagnrýnir viðbrögð kaþólsku kirkjunnar
- Föstudagur, 2. apríl 2010, Erlent Fórnarlömb presta mótmæltu
- Þriðjudagur, 6. apríl 2010, Erlent Aðeins toppurinn á ísjakanum
- Laugardagur, 18. september 2010, Erlent Páfi bað með fórnarlömbum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































