Ummæli kardínála vekja reiði
Baráttufólk fyrir réttindum samkynhneigðra hafa harðlega gagnrýnt tilraunir Tarcisio Bertone, kardínála í Páfagarði, til þess að tengja saman samkynhneigð og barnaníð. Kardínálinn lét í opinberri heimsókn sinni til Chile hafa eftir sér að samkynhneigð en ekki skírlífi væri orsök barnaníðs.
Bertone sagðist hafa gögn frá fjölda sálfræðinga sem sýndu fram á að engin tengsl væru milli skírlífis og barnaníðs. „En hins vegar hafa aðrir, eftir því sem mér skilst, sýnt fram á tengsl samkynhneigðar og barnaníðs. Það er satt. Ég hef gögn frá sálfræðingum sem sýna það.“
Patricio Walker, öldungaþingmaður í Chile, segist gjarnan vilja fá að sjá þau gögn sem kardínálinn vísar til þar sem hann telur kardínálann hafa rangt fyrir sér.
„Skírlífi veldur mannfólki meiri skaða en samkynhneigð, þar sem um frjálst val er að ræða. Ég er hneykslaður á orðum þessa hátt setta manns innan kirkjunnar,“ segir Hugo Gutierrez, þingmaður í Chile.
Gaylib, Enrico Oliari, formaður baráttuhóps samkynhneigðra í Róm, segist hafa áhyggjur af því talsmaður Páfagarðs á erlendum vettvangi skuli grípa til röksemda sem þykja ekki einu sinni gjaldgengar í þriðja heiminum.
„Sannleikurinn er sá að Bertone er með klaufalegum hætti að reyna að beina athyglinni að samkynhneigðum og samtímis frá nýjum fréttum af glæpum gegn börnum sem berast daglega,“ segir Aurelio Mancuso, fyrrverandi forseti Arcigay baráttusamtaka samkynhneigðra á Ítalíu.
Á sama tíma berast fréttir af því að Frakkar hafi fordæmt ummæli Bertones.
Að sögn Bernard Valero, utanríkisráðherra Frakklands, er óásættanlegt að tengja saman samkynhneigð og barnaníð. Sagðist hann fordæma ummæli Bertones.
Bloggað um fréttina
-
Baldur Sigurðarson Er ekki bara kominn tími til að skoða þetta nánar? -
Reputo Ánægður með Bertone
Erlent »
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Erlent Segir samkynhneigð orsök barnaníðs
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Erlent Samkynhneigðum heimilt að elskast
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Erlent Obama skrifar undir lög um samkynhneigða hermenn
- Laugardagur, 14. maí 2011, Erlent Umræðum um dauðarefsingu við samkynhneigð frestað
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Erlent Birta myndir og nöfn samkynhneigðra á forsíðu
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina


































