Með 24 nagla í líkamanum

Þerna frá Srí Lanka mun á morgun gangast undir aðgerðir til að fjarlægja 24 nagla úr líkama hennar. Segir þernan, að húsbóndi hennar í Sádi-Arabíu hafi neglt naglana í hana í refsingarskyni.

Konan, sem heitir L. T. Ariyawathi og er 49 ára, flaug heim til Srí Lanka frá Sádi-Arabíu í síðustu viku og vbar lögð inn á  Kamburupitiya sjúkrahúsið.  Prabath Gajadeera, forstjóri sjúkrahússins, sagði við AFP, að röntgenmyndir sýndu að 24 naglar og ein saumnál eru í líkama konunnar. Einn nagli var í enninu. Lengstu naglarnir voru 2 tommur og flestir þeirra voru í höndum og fótum konunnar.

Gajadeera sagði, að naglarnir virtust ekki hafa skaðað líffæri.

Um 1,8 milljónir Srí Lankabúa starfa í útlöndum, aðallega konur. Margar starfa sem þernur í Miðausturlöndum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert