Skilnaðarstríð Berlusconis

Veronica Lario
Veronica Lario

Veronica Lario, eiginkona Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, fer fram á mánaðarlegar greiðslur sem nema 3,5 milljónum evra eftir að skilnaður þeirra gengur í garð. Það jafngildir rúmlega hálfum milljarði íslenskra króna.

Hjónin náðu samkomulagi í maí, þar sem samið var um að Lario fengi 300.000 evrur í grunnframfærslu á mánuð. Auk þess átti  Lario að fá leyfi til að nota lúxusvillu Berlusconis í Mílanó að vild.

Berlusconi bauðst auk þessa að láta af hendi rakna 1.8 milljónir evra á mánuði. Það þótti Lario helst til lítið.

Veronica Lario er fyrrum leikkona og hún sótti um skilnað á síðasta ári eftir opinberanir þess efnis að eiginmaðurinn hefði sótt afmælisveislu átján ára fyrirsætu á framabraut sem kallaði hann „pabba.“

Áætlað er að réttarhöld vegna skilnaðarins fari fram í desember.

Berlusconi er einn ríkasti maður Ítalíu, eignir hans eru metnar á um 9 milljónir dollara, samkvæmt Forbes tímaritinu.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert