Langt í að júanið verði alþjóðlegt

Hu Jintao forseti Kína.
Hu Jintao forseti Kína. AP

Forseti Kína, Hu Jintao, sagði í dag að núverandi gjaldmiðlakerfi væri úr sér gengið. Hann sagðist telja að  nokkuð langt sé þar til kínverska júanið verði samþykkt sem alþjóðlegur gjaldmiðill.

Forsetinn fer í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna á miðvikudaginn og endurspegla ummæli hans óróa vegna stöðu dollarans sem helsta alþjóðlega gjaldmiðilsins.

Hann gagnrýnir að 600 milljörðum dollarar hafi verið veitt inn í bandaríska hagkerfið af hinu opinbera og segir að það muni veikja dollarann.

Hann segir að fjármálastefna Bandaríkjanna hafi mikil áhrif á efnahag heimsins og fjármagnsflæði og því ætti dollaranum að vera haldið stöðugum og á raungengi.

Bandaríkjamenn hafa kvartað yfir of lágu gengi kínverska júansins og segja það vera gert í þeim tilgangi að auka útflutning frá Kína.

Hu sagðist ekki telja að verðbólga myndi aukast í Kína, ef júanið yrði viðurkennt sem alþjóðlegur gjaldmiðill.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert