Einstök samstaða og bjartsýni

Á áður óbirtu myndbandi af námamönnunum 33, sem voru lokaðir  inni í námu í Síle í fyrra, sést einstök samstaða og bjartsýni mannanna. Námamennirnir undirbúa nú hátíðahöld í október til að fagna því að eitt ár er liðið síðan þeir sluppu úr prísundinni.

Náman féll saman þann 5. ágúst í fyrra og í fyrstu voru allir mennirnir taldir af. 17 dögum síðar kom í ljós að þeir höfðu lifað af og í gegnum litla holu voru þeim færðar lífsnauðsynjar. Þeim var bjargað rúmum tveimur mánuðum síðar; 13. október og fylgdist allur heimurinn með þessari fræknu björgun.

Námamennirnir eru þjóðhetjur í heimalandi sínu og til stendur að gera kvikmynd um raunir þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert