Fjölkvænismaður misnotaði 12 ára barn

Warren Jeff, fjölkvænismaður og mormóni.
Warren Jeff, fjölkvænismaður og mormóni. Reuters

Dómstóll í Texas dæmdi 55 ára gamlan trúarleiðtoga og  fjölkvænismann fyrir misnotkun á tveim börnum. Hafði hann gert tvær ungar stúlkur að brúðum sínum í svokölluðu andlegu hjónabandi.

Warren Jeffs, 55 ára er bókstafstrúarmaður og leiðtogi í kirkju sinni sem aðhyllist fjölkvæni.

Jeffs gæti fengið  119 ára fangelsisdóm fyrir glæp sinn. 

Niðurstöður erfðarannsókna sýndu fram á að Jeff hafði barnað 15 ára stúlku og komust lögreglumenn yfir upptöku sem sannaði að Jeffs hafði misnotaði 12 ára stúlku kynferðislega. 

Jeffs telur sig vera fórnarlamb trúarlegra ofsókna.

Ellefu menn í trúarsöfnuðinum voru kærðir fyrir kynferðislega misnotkun og tvíkvæni. Sjö þeirra hafa verið sakfelldir og hafa fengið 6 til 75 ára fangelsisdóm. 

Sjá frétt á vef The Australian.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert