Megrunarkúrar byggja á rökvillu

Offita er vaxandi heilbrigðisvandamál víða um heim.
Offita er vaxandi heilbrigðisvandamál víða um heim. Reuters

Næringarfræðingar hafa löngum haldið því fram að með því að draga úr áti sem nemur 500 kaloríum á dag geti fólk búist við því að léttast um eitt pund eða hartnær hálft kíló á viku. Þetta er ekki alls kostar rétt, að mati ritstjóra breska dagblaðsins Independent í heilbrigðismálum.

Það er Jeremy Laurance, ritstjóri blaðsins í þessum málaflokki, sem gerir þetta að umtalsefni í dag. Bendir Laurance þar á að 250 kaloríur samsvari um það bil einu súkkulaðistykki.

Kálið sé hins vegar ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Þannig breytist efnaskiptin í líkamanum þegar aukakílóunum fækkar. Það þýðir aftur að kaloríuskerðingin hefur minni áhrif þegar kílóunum fækkar. Það er sem sagt ekki línulegt samband á milli færri kaloría, eða hitaeininga, og þess að léttast sem megrúnarkúrnum nemur.

Laurance ræðir við Kevin Hill, sérfræðing í bandaríska heilbrigðiskerfinu, sem heldur því fram að með því sleppa súkkulaðistykkinu geti fólk búist við því að léttast um 25 pund á þremur árum eða um 11,4 kíló, en ekki 79 pund, eða um 36 kíló, líkt og áður hafi verið haldið fram

Framsetning á skilvirkni megrunarkúra byggi því á fölskum forsendum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert