Landnemar drepnir í grjótkasti

Frá landnemabyggðum Ísraela í Palestínu
Frá landnemabyggðum Ísraela í Palestínu Reuters

Ísraelskur landnemi beið ásamt átján mánaða syni sínum bana þegar maðurinn missti stjórn á bíl sínum vegna grjótkasts frá Palestínumönnum, að sögn ísraelsku lögreglunnar.

AFP hefur eftir lögreglu að maðurinn hafi fengið grjót í höfuðið og velt bíl sínum með fyrrgreindum afleiðingum. Maðurinn bjó í Kiryat Arba, landnemabyggðinni nálægt Hebron á suðurhluta Vesturbakkans.

Nokkuð var um árekstra á milli lögreglu og Palestínumanna í bæjum á Vesturbakkanum, á föstudag er leiðtogar Palestínumanna sóttu formlega um aðild að Sameinuðu þjóðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert