ESB fagnar niðurskurði á Ítalíu

Olli Rehn og Mario Monti. stækka

Olli Rehn og Mario Monti. Reuters

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að niðurskurðaráform ítölsku ríkisstjórnarinnar séu skref í rétta átt og stuðli að því evru-svæðið rétti úr kútnum á ný.

„Skrefin sem stigin voru í gær eru mjög mikilvæg," segir talsmaður efnahagsmála hjá framkvæmdastjórninni, Amadeu Altafaj, á blaðamannafundi í Brussel í dag.

Mario Monti, forsætisráðherra, kynnti í gærkvöldi víðtækar aðgerðir til þess að draga úr skuldum ríkissjóðs og á fimmtudag koma leiðtogar Evrópusambandsríkjanna saman á fundi í Brussel þar sem skuldavandi evru-ríkjanna verður ræddur.

Olli Rehn, sem fer með efnahagsmál hjá framkvæmdastjórn ESB, fagnar aðgerðum ítalskra stjórnvalda en hvetur stjórnvöld þar í landi til þess að gera enn betur. 

„Þessi pakki er mjög mikilvægt skref í að setja ríkisfjármálin í réttar skorður og styðja við hagvöxt," segir Rehn en framkvæmdastjórnin mun tjá sig frekar um niðurskurðinn þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Mario Monti lýsti yfir áhyggjum sínum í dag af því að evran geti sundrað Evrópu í stað þess að sameina hana.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Edith Bouvier blaðamaður hjá franska blaðinu Le Figaro

Biðlar eftir hjálp við að komast úr landi

21:00 Franski blaðamaðurinn sem særðist í árás í borginni Holms í gær hefur óskað eftir því að komast frá Sýrlandi eins fljótt og auðið er. Meira »
Júlía Tímósjenkó fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu situr nú í fangelsi.

Tímósjenkó veik og kvalin í fangelsi

19:04 Fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Júlía Tímósjenkó, er „veik og líður stöðugar kvalir" að sögn kanadískra lækna sem skoðuðu hana í fangelsinu. Þeir sögu jafnframt að yfirvöld hefðu bannað þeim að gera mikilvægar blóð- og eitrunarprufur á henni. Meira »

Manning formlega ákærður

Bradley Manning í handjárnum.
18:43 Bandaríski hermaðurinn Bradley Manning var í dag formlega ákærður og stefnt fyrir herrétt, fyrir að hafa lekið bandarískum leyniskjölum til WikiLeaks. Hann gæti átt ævilangt fangelsi yfir höfði sér. Meira »

Verðir áfram í varðhaldi

Ítalski öryggisvörðurinn Salvatore Girone á leið úr dómshúsinu.
16:20 Indverskur dómstóll hefur dæmt tvo verði af ítölsku olíuflutningaskipi í áframhaldandi gæsluvarðhald. Mennirnir skutu tvo indverska sjómenn til bana. Þeir héldu að mennirnir væru sjóræningjar. Meira »

Vilja flytja lík Colvin frá Sýrlandi

Marie Colvin. Hún missti sjónina á öðru auga í Sri Lanka árið 2001 en lét ...
14:59 Flytja á breskan ljósmyndara, sem særðist í Homs í Sýrlandi í gær í árás sem varð tveimur vestrænum félögum hans að bana, úr borginni sem fyrst. Að sögn breska utanríkisráðuneytisins á að flytja Paul Conroy til nágrannaríkis þar sem hann mun fá læknisaðstoð. Eki hafa fengist upplýsingar um hvort hann sé enn í Homs eða hvort hann sé lagður af stað. Meira »

Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu

16:42 Fjölmargir Argentínumenn leituðu örvæntingarfullir að ástvinum á spítölum Buenos Aires í dag í von um að þeir hefðu lifað af lestarslys í gærkvöldi sem kostaði 50 manns lífið. Hundruð eru slasaðir og hefur tveggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir í landinu. Víða má sjá flaggað í hálfa stöng. Meira »

Sextán létust í snjóflóðum

Þorspbúar skoða ummerki eftir snjóflóðið.
15:42 Að minnsta kosti 16 hermenn létust og þriggja er enn saknað eftir tvö mikil snjóflóð í Kasmír-héraði á Indlandi í nótt. Herbúðir eru að hluta til grafnar undir fönn og varað er við fleiri flóðum. Meira »

Leita enn að líkum um borð myndskeið

Costa Concordia björgun
14:37 Enn er leitað að líkum sjö manna sem saknað er eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia sökk undan ströndum ítölsku eyjunnar Giglio. Lík fimm ára stúlku fannst í gær en faðir hennar fórst einnig í slysinu. Meira »

Sjö hermenn létust í þyrluslysi

Bandarískir hermenn. Myndin er úr safni.
14:24 Sjö landgönguliðar létust á heræfingu í gærkvöldi í Arizona í Bandaríkjunum þegar tvær þyrlur skullu saman.  Meira »

Obama biðst afsökunar á bókabrennu

Mótmælt skammt frá Kabúl.
13:20 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Hamid Karzai, forseta Afganistan, afsökunarbeiðni vegna bandarískra hermanna í Bagram-stöðinni sem vanvirtu íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslima. Meira »

Látin hlaupa í 3 tíma í refsingarskyni

Savannah Hardin.
13:35 Tvær bandarískar konur hafa verið handteknar eftir að þær létu níu ára stúlku hlaupa í þrjár klukkustundir samfleytt með þeim afleiðingum að hún fékk krampakast vegna ofþornunar og dó nokkrum dögum síðar. Voru konurnar að refsa stúlkunni fyrir að hafa logið að annarri þeirra. Meira »

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

Ahmed Ben Bella.
12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.
11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Olíumálverk
Sjá nánar á Facebook/ cebu art...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mín...
www.aksturogkennsla.is
Bílatímar, ökuskóli, akstursmat, endurtektarpróf. Sanngjarnt verð og góð þjónust...
Glæsilegt heilsárshús til leigu
Glæsilegt sumarhús til leigu 11 km frá Borgarnesi. Allt til alls, heitur pottur...
 
Félagsráðgjafi við geðdeild
Heilbrigðisþjónusta
Félagsráðgjafi við geðdeild Sjúkrahússin...
Hjálpræðisherfinn samkoma
Félagsstarf
Kaffi Amen,föstudagur kl. 21Lifan...
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Stjórnunarstörf
...
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922238 [ Gh....