Drottningin heimsækir Filippus í dag

Filippus prins
Filippus prins Reuters

Filippus prins, eiginmaður Elísabetar drottningar, átti góða nótt á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir hjartaaðgerð í gær. Fjölskylda hans mun heimsækja hann í dag, að sögn talsmanns bresku konungsfjölskyldunnar.

Filippus var níræður fyrr á þessu ári. Hann fann fyrir verk fyrir brjósti í gær og var fluttur með þyrlu á sjúkrahús. Í ljós kom að hann er með þrengingu í kransæð og var neti komið fyrir í æðinni sem greiðir fyrir blóðflæði.

Filippus hefur verið heilsuhraustur fram að þessu og ekkert hefur komið fram um að hann hafi átt við kransæðasjúkdóm að stríða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert