Þingkosningar í Grikklandi í dag

Lögregluhundur leitar á kjósendum í borginni Thessaloniki í Grikklandi í …
Lögregluhundur leitar á kjósendum í borginni Thessaloniki í Grikklandi í morgun. AFP

Þingkosningar hefjast í Grikklandi í dag. Tveir helstu stjórnmálaflokkar landsins eru taldir eiga eftir að tapa fylgi. Hróp voru gerð að formanni Sósíalistaflokksins og fyrrverandi fjármálaráðherra landsins, er hann mætti á kjörstað í morgun.

Evangelos Venizelos, formaður Sósíalistaflokksins, Pasok, mætti til að kjósa í skóla í Thessaloniki, næststærstu borg Grikklands. Nokkrir einstaklingar sem voru á staðnum púuðu á ráðherrann fyrrverandi og einn hrópaði „þjófur!“

Venizelos aðstoðaði forsætisráðherra landsins við að komast að samkomulagi um niðurskurðar- og björgunarsamning við Evrópusambandið. Samningurinn er umdeildur meðal borgaranna.

Fréttaskýring á mbl.is um kosningarnar: Óttast pólitískan glundroða

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert