Hollande á einkafundi með Sarkozy

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, er nú mættur í forsetahöllina, Elysée Palace í París, en þar fer embættistaka hans fram.

Þar er einnig fráfarandi forseti, Nicolas Sarkozy, sem heilsaði Hollande með virktum. Að svo búnu fóru þeir til einkafundar, þar sem Sarkozy mun afhenda Hollande dulmálslyklana fyrir kjarnorkuvopnakerfi Frakka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert