Vilja hraða stjórnarskiptum í Sýrlandi

Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Egyptalands, sést hér ræða við Barack …
Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Egyptalands, sést hér ræða við Barack Obama, Bandaríkjaforseta, á leiðtogarástefnu í Suður-Kóreu fyrr á þessu ári. AFP

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ræddi við Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, í síma í dag en þjóðhöfðingjarnir fóru yfir hvernig samræma mætti aðgerðir til að flýta fyrir stjórnarskiptum í Sýrlandi. Þetta segir talsmaður Hvíta hússins í Washington.

Fram kemur í yfirlýsingu að meðal þess sem rætt hafi verið um sé brotthvarf Bashars al-Assads úr stóli forseta og að stjórnvöld hlíti kröfum almennings í Sýrlandi.

Þá segir að Obama og Erdogan hafi báðir lýst því yfir að þeir hafi áhyggjur af aðgerðum sýrlenskra stjórnvalda gagnvart stjórnarandstæðingum í landinu og að staða mannréttinda fari versnandi í kjölfar grimmdarverka stjórnvalda í Sýrlandi.

Þeir hétu því að samræma aðgerðir til að aðstoða íbúa sem hafa flúið átökin, en margir hafa farið yfir landamærin til Tyrklands eða annarra nágrannaríkja.

Þá segir í yfirlýsingu Hvíta hússins að Bandaríkjamenn og Tyrkir muni vera í nánum samskiptum varðandi samstarf þjóðanna til að stuðla að lýðræðislegum breytingum í Sýrlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert