40% stjórnarmanna verði konur

Viviane Reding, yfirmaður dómsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Viviane Reding, yfirmaður dómsmála í framkvæmdastjórn ESB. AFP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað í dag að leggja fram frumvarp að nýjum lögum sem kveða á um að fyrirtækjum í ríkjum sambandsins verði skylt að hafa ákveðið hlutfall af stjórnum sínum skipað konum.

„Þetta er frágengið. Framkvæmdastjórnin hefur tekið undir tillögu mína að evrópskum lögum um að konur skipi 40% stjórnarmanna fyrirtækja fyrir 2020,“ skrifaði Viviane Reding, yfirmanni dómsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, á Twitter-síðu sína í kjölfar ákvörðunarinnar.

Frá þessu er greint á fréttavefnum Euobserver.com.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert