Brúðguminn nauðgaði frænku brúðarinnar

Margar fréttir af nauðgunum hafa borist frá Indlandi undanfarið
Margar fréttir af nauðgunum hafa borist frá Indlandi undanfarið AP

Lögreglan í Gwalior á Indlandi handtók brúðguma fyrir að að nauðga brúðkaupsgesti á brúðkaupsdaginn. Nauðgunin átti sér stað í Murar þann 3. júní, daginn sem hinn 25 ára Janak Singh átti að ganga í það heilaga.

Samkvæmt kæru sem lögð var fram af þolanda nauðgunarinnar laumaði Janak sér inn í herbergi hennar í skjóli mannfjöldans og nauðgaði henni. 

Í tvo daga var stúlkan of óttaslegin til að segja frá nauðguninni. Loks sagði hún frænku sinni frá því sem gerst hafði og frænkan fylgdi henni á lögreglustöðuna, þar sem hún lagði fram kæru.

Þolandinn er náskyld brúðinni, en hún hafði komið um langan veg til að vera viðstödd hjónavígsluna. Janak Singh er enn í haldi lögreglu.

Times of India segir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert