Límdi fyrir munn sjö ára stúlku

Kennari límdi fyrir munn sjö ára nemanda síns.
Kennari límdi fyrir munn sjö ára nemanda síns. AFP

Japanskur kennari límdi fyrir munn sjö ára stúlku. Þetta gerði hann í von um hún smitaði ekki hina nemendurna. Kennarinn greip til þessarar aðgerðar þegar stúlkan átti að bera fram hádegismat til annarra nemenda í bekknum í bænum Tochigi í norðurhluta Tókýó. Þetta gerði hann vegna þess að stúlkan hafði gleymt að koma með andlitsgrímu.

Skólabörn í Japan bera fram og borða hádegismat í skólastofum sínum. Í flestum skólum þurfa þau að hylja vit sín þegar þau bera fram matinn. Kennarinn bað stúlkuna og foreldra hennar afsökunar eftir að nafnlaus ábending barst skólayfirvöldum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert