10 ára ákærð fyrir að nauðga 3 ára

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ásdís Ásgeirsdóttir

Tíu ára stúlka frá Houston í Texas-ríki hefur verið ákærð fyrir að nauðga þriggja ára gömlum dreng. Nauðgunin er sögð hafa átt sér stað í húsagarði í apríl síðastliðnum. Þetta kemur fram í frétt Huffington Post.

Stúlkan var handtekin í síðustu viku og haldið í unglingafangelsi í fjóra daga án lögmanns þar til Quanell X, leiðtogi New York Black Panther samtakanna í Houston greip inn í. Gegnir hann nú starfi lögmanns hennar.

Sagði Quanell X KHOU fréttastöðinni að hin meinta árás hefði ekki verið neitt meira en „óviðeigandi ólæti“.

Nöfn barnsins og móður hennar hafa enn ekki verið gefin upp, né heldur nánari upplýsingar um atvikið. Móðir stúlkunnar viðurkennir að mögulegt sé að dóttir hennar hafi framið glæp en segir hana enn vera barn og hafa ekki vitað að hún væri að gera nokkuð rangt.

Stúlkan á að mæta fyrir rétt síðar í mánuðinum. Verði hún fundin sek gæti hún verið skráð sem kynferðisbrotamaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert