Skutu á sofandi ungmenni á heimavist

Yfirlýst markmið Boko Haram samtakanna er að stofna íslamskt ríki …
Yfirlýst markmið Boko Haram samtakanna er að stofna íslamskt ríki í norðausturhluta Nígeríu. HO

Tugir létust þegar byssumenn hófu skothríð á heimavist í skóla í Nígeríu. Talið er víst að byssumennirnir séu úr Boko Haram-hryðjuverkasamtökunum.

Staðfest er að 40 hafi látist, en óttast er að þeir séu fleiri. Skotið var á nemendur skólans þar sem þeir lágu sofandi í rúmum sínum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Boko Haram-samtökin ráðast á skólabörn. Yfirlýst markmið samtakanna er að stofna íslamskt ríki í norðausturhluta Nígeríu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert