Sérfræðingar ræða samkynhneigð í Úganda

Yoweri Museveni forseti Úganda skrifaði undir lögin gegn samkynhneigð þann …
Yoweri Museveni forseti Úganda skrifaði undir lögin gegn samkynhneigð þann 24. febrúar. AFP

Forseti Úganda, Yoweri Museveni, hefur samþykkt að hitta sérfræðinga bandarískra stjórnvalda til að ræða harðneskjulega lagasetningu landsins gegn samkynhneigðum.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði frá þessu í dag þegar hann tók á móti bandarískum háskólastúdentum og fjölmiðlamönnum í ráðuneytinu. Hann sagði markmið sérfræðinganna sem sendir verða til Úganda að ræða við Museveni um það hvernig aðgerðir þeirra stangist á við vísindi og staðreyndir.

„Hann bauð okkur velkomin og sagði: „Ég fagna því að fá þá í heimsókn svo við getum rætt málin.“ Og það er einmitt það sem við ætlum að gera,“ sagði Kerry.

Museveni skrifaði í síðasta mánuði undir nýja lagasetningu gegn samkynhneigð, einhverja þá hörðustu í heimi. Samkvæmt þeim mega samkynhneigðir „síbrotamenn“ eiga von á því að vera dæmdir í lífstíðarfangelsi. Þá er samkvæmt lögunum ætlast til þess að almenningur tilkynni yfirvöldum ef grunur vaknar um samkynhneigð samborgara þeirra.

Kerry hefur líkt lagasetningunni við lögin gegn gyðingum sem sett voru á tímum nasista í Þýskalandi.

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert