Fékk klósett í höfuðið og lést

AFP

Fótboltaaðdáandi lést er hann varð fyrir klósettskál sem kastað var frá fótboltaleikvangi í borginni Recife í Brasilíu. Þar fer heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fram í sumar.

Maðurinn lést aðfararnótt föstudags. Átök brutust út milli áhangenda Santa Cruz og Parana á Arruda-leikvanginum. 

Í frétt Sky er haft eftir lögreglumanni að áhangendurnir hafi rifið upp þrjú klósett á baðherbergi leikvangsins og kastað þeim úr stúkunni á andstæðinga sína sem stóðu úti á götu.

Einn fékk klósettskál í höfuðið og lést samstundis.

Sex vikur eru þar til heimsmeistaramótið hefst í Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert