Hafnaði bónorði og var brennd

Frá Pakistan.
Frá Pakistan. AFP

Ung kona lét lífið í Pakistan í dag eftir að kveikt var í henni. Hún hafði hafnað bónorði karlmanns sem vildi ganga að eiga hana. Hún var 18 ára gömul, hann 22 ára.

Sidra Shaukat var ein heima þegar hinn 22 ára gamli Fayyaz Aslam kom heim til hennar. Hann hellti yfir hana eldsneyti og kveikti í henni. Hún var flutt á sjúkrahús en var úrskurðuð látin áður en hún komst þangað. Maðurinn var handtekinn.

Faðir stúlkunnar segir að Aslam hafi áreitt hana að undanförnu og hótað henni lífláti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert