Nauðguðu tveimur unglingsstúlkum

Norska lögreglan
Norska lögreglan Af vef Wikipedia

Tveir eru í haldi lögreglu í Finnmörk í Noregi fyrir að hafa nauðgað tveimur unglingsstúlkum. Er nú rannsakað hvort þeir hafi brotið gegn þeirri þriðju.

Í frétt Aftenposten kemur fram að annar þeirra er fimmtán ára en hinn á þrítugsaldri. Þeir höfðu dælt áfengi í stúlkurnar en fólkið var í partíi aðfaranótt sunnudags þegar brotin voru framin. 

Lögreglustjórinn í Vestur-Finnmörk, Svein Erling Mikalsen, segir í samtali við Aftenposten að mennirnir hafi verið handteknir í gær en þeim hafi verið sleppt að loknum yfirheyrslum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert