Samið um vopnahlé?

AFP

Samkomulag um vopnahlé hefur náðst á milli Ísraels og herskárra Palestínumanna.

Þetta hefur BBC-fréttastofan eftir ísraelskum embættismanni.

Samkvæmt upplýsingunum á vopnahléið að hefjast á föstudag klukkan sex að morgni að staðartíma.

Talsmaður Hamas-samtakanna sagði þó í samtali við AFP-fréttastofuna fyrir stundu að fréttirnar væru rangar. Ekkert samkomulag hefði náðst um vopnahlé. „Fréttirnar um vopnahlé eru rangar. Viðræður eru í gangi en við höfum ekki komist að samkomulagi,“ sagði Sami Abu Zuhr.

Að sögn ísraelska embættismannsins á að hafa verið samið um vopnahléið eftir fundinn í Egyptalandi á mánudag. Er það ekki í samræmi við yfirlýsingu talsmanns Hamas-samtakanna, í kjölfar fundarins, sem sagði að samtökin höfnuðu því að taka þátt í vopnahléinu sem Egyptar lögðu til.  „Vopna­hléi án þess að náðst hafi samn­ing­ar er hafnað, menn leggja ekki niður vopn og semja í kjöl­farið,“ sagði Fawzi Bar­h­um.

227 Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraela á Gaza síðan þær hófust 8. júlí sl. Einn Ísra­eli sem varð fyr­ir sprengju­broti úr flug­skeyti frá Gaza hefur látið lífið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert