Fjögur börn létust

Átta létust, þar af fjögur börn, í loftárás Ísraela á hús í Gaza-borg í dag. Þetta segja palestínskir heilbrigðisstarfsmenn. 

Fyrr í dag létust að minnsta kosti fimm í loftárás Ísraela á sjúkrahús á Gaza. Að minnsta kosti 520 Palestínumenn hafa látist frá því að árásir Ísrelsmanna á Gaza hófust fyrir um tveimur vikum. 

Saeb Erakat, helsti samningsmaður Palestínumanna í deilunni við Ísraela, segir að Ísrelar fremji „stríðsglæpi á Gaza“.

Drengur á Gaza.
Drengur á Gaza. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka