„Sé son minn fyrir mér liggja þarna“

Silene Fredriksz-Hoogzand ásamt eiginmanni sínum. Þau misstu son sinn í …
Silene Fredriksz-Hoogzand ásamt eiginmanni sínum. Þau misstu son sinn í slysinu. Skjáskot af BBC

Þegar ég ligg í rúminu á kvöldin þá sé ég son minn fyrir mér liggja þarna á jörðinni. Ég sé það,“ segir hollensk móðir sem missti 23 ára son sinn og unnustu hans í flugslysinu í Úkraínu.

Sonur Silene Fredriksz-Hoogzand, Bryce Fredriksz, var umborð í malasísku farþegaþotunni með unnustu sinni, Daisy Oehlers. Þau voru á leið til Balí í sumarfrí.

Angist fjölskyldunnar er mikil, einnig vegna þess að ekki er víst hvenær líkamsleifar þeirra verða fluttar heim. 

„Ég vil að allir geri sitt besta svo að öll líkin verði flutt heim sem fyrst,“ segir Silene í viðtali við BBC. „Þau hafa legið þarna í marga daga. Þegar ég ligg í rúminu á kvöldin þá sé ég son minn fyrir mér liggja þarna á jörðinni. Ég sé það,“ segir hún og brestur í grát.

Silene segist ekki reið. Hjarta hennar sé hins vegar brotið. „Ég verð að finna leið til að halda áfram að lifa lífinu án þeirra beggja. Hvert sem ég horfi finnst mér ég sjá þau.

Hollenskir rannsakendur eru komnir til Torez í Úkraínu en þangað hafa lík þeirra sem voru um borð í vélinni verið flutt. 196 lík eru þar geymd í lest. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert