Læstu einhverfa syni í dýflissu

AFP

Bandarísk hjón hafa verið handtekin og ákærð fyrir að læsa einhverfa tvíburasyni sína inni í kjallara á heimili þeirra sem minnti helst á dýflissu.

Í frétt Washington Post um málið segir að engin húsgögn og ekkert rafmagn hafi verið í kjallaranum. Þar var aðeins dýna á gólfi. Herbergið lyktaði af þvagi og á því var aðeins einn, lítill gluggi. Tvíburarnir eru 22 ára gamlir.

Blaðið vitnar í lögregluskýrslur í Montgomery-sýslu í Maryland. Þar kemur m.a. fram að kjallarahurðinni hafi verið læst með hengilás. 

Tvíburarnir geta ekki talað. Þeir tjá sig með bendingum, segir í frétt The Post. Faðir tvíburanna segir að annar þeirra hafi stundum reynt að hlaupast á brott og því hafi þau hjónin byrjað að læsa þá inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert