Lestin með líkunum komin á áfangastað

Lest með líkamsleifum margra þeirra sem fórust er farþegaþota hrapaði í Úkraínu er nú komin á leiðarenda til borgarinnar Kharkiv. Lestin lagði af stað frá Torez í gær en aðskilnaðarsinnar á svæðinu höfðu tafið ferð hennar nokkuð. Líkamsleifarnar verða nú fluttar með herflugvél til Hollands.

Vél­in var skot­in niður í aust­ur­hluta Úkraínu á fimmtu­dag. All­ir sem voru um borð lét­ust, alls 298 manns. Ekki eru lík allra þeirra sem voru um borð í vél­inni í lest­inni. Í frétt Sky seg­ir að 282 lík séu í lest­inni.

Blómahaf á Schiphol-flugvelli í Amsterdam.
Blómahaf á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert