Féll ofan í ræsi og lét lífið

Wikipedia/Umberto

Rannsókn er hafin á því hvernig það atvikaðist að kona á áttræðisaldri féll ofan í ræsi í borginni Locarno á Ítalíu á sunnudaginn og lét lífið. Konan sást á vappi í kringum ræsið áður en hún féll ofan í það en ekki er vitað hvað varð þess valdandi.

Fram kemur í ítalska dagblaðinu Giornale del Popoloað líklega hafi konan einfaldlega misst jafnvægið. Fólk í nágrenninu hafði samband við neyðarlínuna þegar það sá hluta af líkama konunnar standa upp úr ræsinu. Hún var úrskurðuð látin af sjúkraflutningamönnum þegar þeir komu á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert