Segjast hafa tekið Haines af lífi

David Haines.
David Haines. AFP

Hryðjuverkahópurinn Ríki Íslam birti í kvöld myndband af því sem sagt er vera aftaka breska hjálparstarfsmannsins Davids Haines. Hópurinn lýsti því yfir að Haines hefði verið gerður höfðinu styttri sökum þess að David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur heitið stuðningi við Bandaríkin í stríðinu gegn Ríki Íslam.

Þetta er þriðja aftaka Ríkis Íslam sem gerð er með svipuðum hætti á undanförnum vikum. Tveir bandarískir blaðamenn sem teknir voru höndum í Sýrlandi voru einnig líflátnir og aftakan tekin upp á myndband. 

Haines er 44 ára og fædd­ist í Skotlandi. Hann var tek­inn sem gísl í Sýr­landi í mars 2013. Hann starfaði fyr­ir alþjóðleg hjálp­ar­sam­tök og hef­ur starfað á Balk­anskag­an­um, Afr­íku og í miðaust­ur­lönd­um. 

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert