Þrír hermenn horfnir

Mennirnir eru hermenn frá Afganistan.
Mennirnir eru hermenn frá Afganistan. AFP

Þrír hermenn frá Afganistan, sem komu til Massachusetts í Bandaríkjunum til að taka þátt í árlegri heræfingu, virðast vera horfnir. Leitað er að mönnunum en ekki er talið að þeir séu hættulegir almenningi. Hermennirnir sáust síðast í verslunarmiðstöð í gær.

Æfingin stendur yfir í eina viku en hana sækja 200 hermenn frá sex löndum. 15 hermenn frá Afganistan taka þátt í æfingunni að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert