Fannst 12 árum eftir mannránið

Sabrina var fjögurra ára er móðir hennar nam hana á …
Sabrina var fjögurra ára er móðir hennar nam hana á brott og fór með hana til Mexíkó.

Stúlka, sem numin var á brott af móður sinni árið 2002 er foreldrarnir stóðu í forræðisdeilu, fannst í Mexíkó. Stúlkan fæddist í Bandaríkjunum og á bandarískan föður.

Sabrina Allen er nú sautján ára. Yfirvöld sóttu hana í smábæ í suðausturhluta Mexíkóborgar í gær, segir í frétt Sky-fréttastofunnar um málið.

Stúlkan var við góða heilsu. Móðir hennar var handtekin en meðal þeirra sem komu að rannsókn málsins og handtökunni voru fulltrúar FBI.

Móðirin hefur verið flutt í gæsluvarðhald í fangelsi í Texas. Faðirinn segist himinlifandi að dóttir hans hafi loks fundist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert