Skaut börn sín til bana

AFP

Maður í Flórída í Bandaríkjunum skaut þrjú börn sín og framdi svo sjálfsmorð í morgun eftir rifrildi við eiginkonu sína. Tvö börn mannsins létust en það þriðja liggur alvarlega slasað á sjúkrahúsi. Fréttastofan NBC News greinir frá þessu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Volusia-sýslu voru börnin sem létust 11 og 14 ára gömul. Faðir þeirra, David Mohney, var 52 ára gamall. Níu ára gömul dóttir mannsins liggur nú alvarlega slösuð á sjúkrahúsi í Orlando.

Móðir barnanna flúði til nágranna síns til þess að ná í hjálp eftir að Mohney hótaði að skjóta hana. Hún slasaðist ekki og hefur nú verið yfirheyrð af lögreglu.

Hringt var í lögreglu klukkan rúmlega fimm að staðartíma í morgun. Stuttu síðar heyrðust byssuhvellir úr húsinu. Þegar lögregla kom á svæðið fann hún manninn og börnin inni á heimilinu. Stúlkurnar tvær voru í svefnherbergi á efri hæðinni en drengurinn á neðri hæðinni. Maðurinn fannst síðan látinn á eldhúsgólfinu en við hliðina á honum fannst skammbyssa.

Drengurinn var látinn er lögreglu bar að garði en maðurinn og eldri dóttirin létust á sjúkrahúsi.

Parið hafði sótt um skilnað en einu sinni áður hafði lögregla komið á heimilið vegna tilkynningar um heimilisofbeldi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert