Tveggja ára gömul stelpa lést af völdum ebóluveirunnar í Malí í dag. Stúlkan var nýlega komin til landsins eftir heimsókn til Gíneu, þar sem hún sýktist. Um var að ræða fyrsta ebólu tilfellið í vestur-afríska ríkinu.
Stúlkan lést á milli klukkan 16 og 17 á staðartíma. AFP fréttastofan greinir frá þessu.
Yfir 4.900 hafa nú látist af völdum veirunnar, sem geisar harðast í Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne.
Veiran smitast með blóði og líkamsvessum og ekkert bóluefni er til gegn henni. Tölur um hlutfall þeirra sem látast af völdum hennar eru nokkuð mismunandi, en yfirleitt er talað um að 2/3 þeirra sem sýkist af veirunni látist innan nokkurra daga.