F35 „Nintendo“ orrustuþotan

F35 Lightning II orrustuþotan verður fullkomnasta orrustuþota sem herir heimsins hafa nokkurn tíma séð. Ólíkt mörgum öðrum orrustuþotum, þá verður mjög auðvelt að fljúga henni.

Pete Kosorgin, tilraunaflugmaður hjá hergagnaframleiðandanum BAE, segir hana vera af „Nintendo“ kynslóð flugvéla. Með því að ýta á einn takka gerir flugvélin sjálf ótrúlegustu hluti. Þannig er til dæmis mjög auðvelt að breyta henni úr hefðbundinni orrustuþotu í flugvél sem getur lent og tekið á loft eins og þyrla, ekki ólíkt Harrier-orrustuþotunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert