Ók viljandi á ólétta kærustu

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

„Ertu tilbúin fyrir fóstureyðinguna?“ spurði maður í Flórída kærustu sína stuttu áður en hann ók viljandi á hana á bíl sínum. Konan var komin sjö mánuði á leið. Lögreglan handtók manninn á mánudag. 

Í frétt WP-TV sjónvarpsstöðvarinnar hringdi maðurinn, sem er 33 ára, í kærustu sína, sem er 32 ára eftir rifrildi þeirra. Hún var þá á gangi í vegkanti skammt frá heimili þeirra. Hann kom svo til hennar skömmu síðar og samkvæmt upptökum úr eftirlitsmyndavélum ók hann á hana. Hann ók svo bíl sínum á staur, segir í frétt Tampa Bay Times. Þar kemur fram að hann hafi svo farið út úr bíl sínum og gengið heim, án þess að aðstoða kærustuna. 

Konan hlaut minniháttar áverka. 

Maðurinn hefur verið ákærður fyrir morðtilraun. Þetta er í annað sinn sem maðurinn er ákærður fyrir að keyra á manneskju. Það gerði hann líka árið 2012. Þá ók hann á bróður sinn eftir rifrildi þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert