Hurfu í gegnum gangstéttina

Það var sem jörðin hefði bókstaflega gleypt tvo vegfarendur í borginni Seoul í Suður-Kóreu á dögunum þegar þeir féllu ofan í holu sem myndaðist í gangstétt. 

Fólkið þurfti aðstoð við að komast upp úr holunni en meiðsli þess voru sem betur fer minniháttar.

Atvikið náðist á myndband og minnir helst á atriði í tölvuleik en enn stendur yfir rannsókn á hvers vegna gangstéttin gaf sig.

Skjáskot af YouTube
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert