Tólf ára drengur í gæsluvarðhaldi

Eldri drengurinn lést af sárum sínum.
Eldri drengurinn lést af sárum sínum. AFP

Tólf ára drengur í Texas er í haldi lögreglu eftir að þrettán ára drengur varð fyrir skoti á heimili í úthverfum Dallas í síðasta mánuði.  Lést hann af sárum sínum en drengirnir voru að leika með skammbyssu.

Nýlega komst lögregla að þeirri niðurstöðu að um manndráp hefði verið að ræða og því var tólf ára vinur drengsins færður í gæsluvarðhald. Áður hafði lögregla talið að um sjálfsvíg væri að ræða.

Talið er að yngri drengurinn hafi staðið í þeirri trú að byssan væri óhlaðin og því tók hann óhikað í gikkinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert