Grunaður um að hafa nauðgað nunnunni

Konan þurfti á skurðaðgerð að halda eftir árásina.
Konan þurfti á skurðaðgerð að halda eftir árásina. AFP

Lögregla á Indlandi hefur handtekið karlmenn rúmlega viku eftir að nunnu á áttræðisaldri var nauðgað í Kolkata. Málið hefur vakið mikla athygli í landinu. Lögregla hafði upp á manninum í borginni Mumbai og handtók hann í gærkvöldi en hann er grunaður um að hafa nauðgað konunni. 

Konan þurfti á skurðaðgerð að halda eftir árásina en hópur ræningja braust inn í nunnuklaustur þar sem hún starfaði. Myndir af mönnunum náðust á öryggismyndavél og hafði lögreglu upp á fjórum þeirra.

Mennirnir voru yfirheyrðir en enginn var handtekinn. Yfirvöld í Kolkata hafa verið gagnrýnd fyrir seinagang við rannsóknina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert