Flugskeytaflutningsbann til Írans afnumið

Vladimir Putín Rússlandsforseti.
Vladimir Putín Rússlandsforseti. AFP

Rússar hafa leyft flutninga á S-300 loftvarnarflaugum frá landinu til Írans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rússneskum yfirvöldum í dag.

Þar segir að samkvæmt tilskipun sem Vladimir Pútín Rússlandsforseti undirritaði megi nú flytja S-300 flugskeyti til Írans. Stutt er síðan Vesturlöndin og Íran náðu samningum um kjarnorkustefnu Írans.

Með tilskipun Pútíns afnemur hann bann við „flutningum frá Rússlandi til Írans" á S-300 flugskeytum. Bannið við flugskeytaflutningum til Írans hefur verið á frá árinu 2010.

S-300 sáust fyrst í Sovétríkjunum árið 1979.
S-300 sáust fyrst í Sovétríkjunum árið 1979. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert