Talinn hafa myrt annan fanga

Af Wikipedia

Lawrence Phillips, fyrrum leikmaður í NFL deildinni, sem þegar situr inni í fangelsi, er talinn hafa myrt mann sem deildi með honum fangaklefa, í Kern Valley State fangelsinu í Kaliforníu um síðustu helgi. 

Hinn 37 ára gamli Damion Soward fannst meðvitundarlaus í klefanum á laugardag og var síðar úrskurðaður látinn. Talið var að þrengt hefði verið að öndunarvegi hans, og staðfesti krufning það í dag.

Phillips er grunaður um morðið, en hann situr inni fyrir ólöglegan vopnaburð og fyrir að hafa gengið tvisvar sinnum alvarlega í skrokk á kærustu sinni. Fyrir það var hann dæmdur í 31 árs fangelsi.

Soward sat inni fyrir morð sem hann var dæmdur í 82 ára fangelsi fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert