Skotum var hleypt af í ríkisháskólanum í Delaware í Bandaríkjunum í gær á fjölmennum viðburði. Þrír nemendur særðust og voru þeir færðir á spítala. Enginn hinna særðu er í lífshættu.
Árásin varð í árlegri keppni í eldamennsku á milli bræðra- og systralaga í skólanum. Lögreglan á háskólasvæðinu rannsakar nú málið en ekki er vitað hvað leiddi til árásarinnar. Er þetta önnur skotárásin í skólanum á skömmum tíma. Í nóvember á síðasta ári var nemandi við skólann skotinn til bana. Lögreglan þá sagði atvikið einstakt tilvik.
Sjá frétt CBS-news.